Vilhjálmur þakklátur eftir afgerandi sigur
Vilhjálmur Árnason hafði sigur í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fram fór í dag. Í fyrstu viðbrögðum sínum við úrslitum lýsti hann miklu þakklæti fyrir stuðninginn sem hann hlaut og þann kraft sem hann segir að hafi einkennt baráttuna.
„Bara gríðarlegt þakklæti fyrir þennan mikla stuðning og alla þá aðstoð sem ég fékk í framboðinu mínu,“ sagði Vilhjálmur í samtali við Víkurfréttire og bætti við að hann væri einnig þakklátur meðframbjóðendum sínum fyrir „drengilega, öfluga baráttu.“
Hann segir niðurstöðuna sýna bæði stuðning og bjartsýni innan flokksins. „Ég er mjög þakklátur, bæði fyrir stuðninginn og líka fyrir kraftinn og vonina í flokknum. Þannig að þetta sýnir og ég er bara mjög stoltur af þessu,“ sagði hann.
Spurður um mikilvægi þess að niðurstaðan hafi verið svona afgerandi sagði Vilhjálmur að hún gæfi honum aukinn kraft inn í næstu skref. Hann líti á oddvitakjörið sem upphaf að stærra verkefni sem bíði í vor.
„Þetta er bara fyrri hálfleikur og stórverkefnið er í vor og að fá svona skýrt og gott umboð gefur manni von og kraft inn í vorið,“ sagði Vilhjálmur.





