Viðreisn 2026
Viðreisn 2026

Fréttir

Vilhjálmur er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 31. janúar 2026 kl. 21:04

Vilhjálmur er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ

Vilhjálmur Árnason er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ en hann hlaut 1037 atkvæði í oddvitaprófkjöri flokksins í dag eða 56,8%. Þátttaka var mjög góð en 1861 tóku þátt og er þetta fjölmennasta prófkjör í sögu flokksins í Reykjanesbæ.

Ásgeir Elvar Garðarsson varð í 2. sæti með 510 atkvæði eða 28% atkvæða.

Unnar Stefán Sigurðsson hlaut 277 atkvæði eða 15,2% atkvæða.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Ógild atkvæði voru 37.

Vilhjálmur mun verða bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 16. maí nk.

Prófkjörið fór fram með hefðbundnum hætti. Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir formaður yfirkjörstjórnar segir að allt hafi gengið vel og að framkvæmd kosninganna hafi verið hnökralaus. Niðurstöður prófkjörsins hafa nú verið staðfestar af yfirkjörstjórn.