Vilja draga úr óleyfisbúsetu í Reykjanesbæ
Reykjanesbær vinnur nú í nánu samstarfi við Lögregluna á Suðurnesjum og Brunavarnir Suðurnesja að því að draga úr óleyfisbúsetu í sveitarfélaginu.
Um er að ræða búsetu í húsnæði sem ekki er ætlað til íbúðar, svo sem atvinnu- eða iðnaðarhúsnæði, eða húsnæði sem ekki hefur hlotið öryggisúttekt.
Markmiðið er að tryggja að húsnæði sem notað er til búsetu uppfylli viðeigandi kröfur laga og reglugerða og að aðstæður íbúa séu öruggar.
Ef fólk veit af eða hefur ástæðu til að ætla að fólk búi við óviðunandi húsnæðisaðstæður er hægt að senda ábendingu. Ábendingar eru nýttar til að meta hvort tilefni sé til frekari skoðunar.
Ábendingagátt Reykjanesbæjar:
https://shorturl.at/G1sD9
Eða með tölvupósti: [email protected]






