Pizzan- skipta í hinn 28. jan
Pizzan- skipta í hinn 28. jan

Fréttir

Sjúkraflutningum fjölgaði um 3% og útköllum slökkviliðs um þriðjung
Meðal stærri verkefna ársins var bruni í timburhaug hjá Íslen
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 1. febrúar 2026 kl. 06:16

Sjúkraflutningum fjölgaði um 3% og útköllum slökkviliðs um þriðjung

Brunavarnir Suðurnesja sinntu 4.101 sjúkraflutningi á árinu 2025, samanborið við 3.968 flutninga árið 2024. Það jafngildir 3% aukningu milli ára. Af heildarfjöldanum voru 1.235 forgangsflutningar.

Þrátt fyrir aukinn heildarfjölda hélt flutningum til Reykjavíkur áfram að fækka. Á árinu 2025 voru 776 flutningar frá sveitarfélögum á Suðurnesjum til Reykjavíkur, samanborið við 781 árið 2024. Til samanburðar voru slíkir flutningar 1.027 árið 2023.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Samkvæmt Brunavörnum Suðurnesja má rekja þessa þróun meðal annars til verulegra umbóta á aðstöðu og teymisvinnu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), sem hafi dregið úr þörf fyrir flutninga á höfuðborgarsvæðið.

Útköll slökkviliðs jukust um 35%

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja sinnti 316 verkefnum á árinu 2025 en þau voru 234 árið 2024. Það er 35% aukning milli ára. Af útköllunum voru 129 forgangsútköll.

Meðal stærri verkefna ársins var bruni í timburhaug hjá Íslenska Gámafélaginu. Þar kviknaði tvisvar í timbri á geymslusvæðinu yfir sumartímann og þurfti slökkviliðið að vera með umfangsmikil viðbrögð, auk öryggisvakta samhliða slökkvistarfi.

Þá komu upp tveir stórir brunar á Ásbrú, annars vegar í Klettatröð og hins vegar í Kliftröð. Í brunanum í Klettatröð nýtti slökkviliðið dróna með hitamyndavél með góðum árangri. Með hitamyndunum var hægt að greina hita og eld undir þökum án þess að senda reykkafara inn í byggingu með hitamyndavél, sem annars hefði verið talið nauðsynlegt.

Menntun og endurmenntun efld

Mikil áhersla var lögð á menntun starfsfólks í sjúkraflutningum á árinu. Fjórir starfsmenn luku framhaldsmenntun og aðrir fjórir hófu nám í framhaldsmenntun.

Þá sneru tveir starfsmenn heim frá Bandaríkjunum eftir að hafa lokið bráðatæknimenntun, sem ekki er kennd á Íslandi. Nú starfa níu bráðatæknar hjá Brunavörnum Suðurnesja og fimm starfsmenn eru í námi eða að hefja nám til bráðatækni.

Einnig var lögð mikil áhersla á endurmenntun alls starfsfólks, þar á meðal sérstakt átak í sérhæfðri endurlífgun barna, í samstarfi við HSS.

Nýir í varaliði og nýr köfunarhópur

Nýir aðilar komu inn í varalið Brunavarna Suðurnesja um áramótin 2024/2025 og hélt menntun þeirra áfram á árinu. Þar á meðal luku þeir grunnnámi 1 og 2.

Árið 2025 luku fjórir starfsmenn framhaldsnámi í slökkviliðsfræðum og fjórir hófu framhaldsnám undir lok árs.

Einnig var á árinu stofnaður köfunarhópur en Brunavarnir Suðurnesja höfðu ekki haft slíkan hóp áður. Þrír starfsmenn luku köfunarnámi og eru komnir á viðbragðslista. Alls eru nú fjórir kafarar innan raða Brunavarna Suðurnesja og stefnt er að því að efla hópinn enn frekar á árinu 2026.