Rúmmál kviku að nálgast það mesta sem mælst hefur frá upphafi atburðanna
Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Þetta nálgast eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá því eldgos hófust á Sundhnúksgígaröðinni, 18. desember 2023. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegasta sviðsmyndin næstu vikurnar kvikuhlaup frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi. Ef gýs er líklegast að eldgosið verði sambærilegt þeim atburðum sem hafa orðið hingað til á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Skjálftavirkni
Lítil skjálftavirkni hefur mælst yfir kvikuganginum líkt og síðustu vikur. Áfram mælist smáskjálftavirkni í Víkum en sú virkni er túlkuð sem gikkskjálftavirkni vegna spennubreytinga á svæðinu.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 3. mars. Veðurstofan heldur áfram að fylgjast náið með þróuninni og uppfærir hættumatið ef breytingar verða á virkninni.






