10. bekkingar fylgja yngstu nemendum yfir götuna við Háaleitisskóla
Háaleitisskóli á Ásbrú hefur hrundið af stað nýju samstarfsverkefni skólastjórnenda og nemenda í 10. bekk til að auka öryggi yngstu nemenda við komur í skólann. Tíundubekkingar munu hér eftir vera til staðar við sleppisvæðið og fylgja nemendum yfir götuna.
Í tilkynningu á upplýsingasíðu Háaleitisskóla á Ásbrú kemur fram að markmiðið sé að tryggja öruggar og skipulagðar aðstæður við komur yngstu nemenda í skólann, sérstaklega þar sem mikil umferð getur skapast á morgnana.
Nemendur í 10. bekk munu héðan í frá sjá um að fylgja nemendum á yngsta stigi yfir götuna og aðstoða við sleppisvæðið við yngsta stigið. Skólinn biður foreldra og forráðamenn jafnframt um að sýna þessum nemendum fyllstu kurteisi og virðingu í þeirra mikilvægu hlutverki fyrir skólasamfélagið.
Þá beinir skólinn því til foreldra að leggja ekki bílum á sleppisvæðinu heldur einungis hleypa nemendum út úr bílum. Með því sé hægt að bæta umferðarflæði og tryggja hámarksöryggi barna við skólasvæðið.






