Sporthúsið
Sporthúsið

Íþróttir

Breytingar á stjórn k.k.d. Keflavíkur: Magnús lætur af formennsku í lok tímabils
Þriðjudagur 17. febrúar 2026 kl. 15:15

Breytingar á stjórn k.k.d. Keflavíkur: Magnús lætur af formennsku í lok tímabils

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Keflavíkur fór fram í gærkvöld og urðu nokkrar breytingar á stjórn deildarinnar. Nýir aðilar komu inn í stjórn og munu taka við stjórnartaumunum á komandi misserum.

Magnús Sverrir, formaður deildarinnar, segir hann ætla að sitja áfram sem formaður út yfirstandandi tímabil. Stjórnin sem setið hefur síðasta árið muni klára tímabilið af krafti og skilja við starfið „á góðum stað“ með það að markmiði að nýir stjórnarmenn fái svigrúm til að læra inn á starfið, kynnast fólkinu í kringum klúbbinn og komast inn í það umfangsmikla starf sem unnið er hjá deildinni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Í yfirlýsingu Magnúsar kemur einnig fram að rekstur deildarinnar sé öflugur. Heildarvelta körfuknattleiksdeildarinnar sé 240 milljónir króna og niðurstaðan 15 milljónir króna í hagnað.

Magnús segir jafnframt að í lok tímabilsins muni hann láta af störfum sem formaður. Þegar hann tók við hlutverkinu hafi ætlunin verið að sitja í tvö ár, en nú séu þau orðin fjögur.

Að lokum hvetur hann allt Keflavíkursamfélagið til samstöðu út tímabilið – leikmenn, stjórn, þjálfara, stuðningsmenn og velunnara – og segir að þegar allir leggist á eitt geti góðir hlutir gerst.

„Við sáum það gerast hjá stelpunum í bikarnum og hver veit nema við sjáum það gerast í vor?“ segir Magnús.