Brjálað að gera í bollubakstri í Týnda bakaríinu
Það hefur verið mikið að gera í bollubakstri síðustu daga hjá bökurum svæðisins. Nýjasta bakaríið í Reykjanesbæ, Týnda bakaríið, lætur sitt ekki eftir liggja þegar kemur að bollubakstri. Þar eru allar hendur á lofti við bollugerð.
Týnda bakaríið er á tveimur stöðum í Reykjanesbæ, í Innri-Njarðvík og við hliðina á Ísbúðinni Huppu á Hafnargötu 90 í Keflavík. Þar stóð Eiður Hauksson vaktina þegar við kíktum í bollur nú áðan.
Í Týnda bakaríinu er fjölbreytt úrval af bollum, hvort sem þær eru með eða án rjóma. Vatnsdeigsbollurnar eru alltaf vinsælastar en svo er Týnda bakaríið með bollu sem er tilbrigði við vinsælan kleinuhring sem bakaríið selur.






