Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Vonast til að hægt verði að finna Lúðvík í sprungu í Grindavík
Þriðjudagur 17. febrúar 2026 kl. 09:44

Vonast til að hægt verði að finna Lúðvík í sprungu í Grindavík

Dómsmálaráðuneytið hefur samþykkt að farið verði í vinnu við að meta aðstæður í sprungu í Grindavík, þar sem Lúðvík Pétursson fórst í banaslysi 10. janúar 2024. Markmiðið er að kanna hvort unnt sé að ráðast í jarðvinnu til að grafa upp jarðneskar leifar hans. Frá þessu er greint á mbl.is í morgun.

Fjölskylda Lúðvíks hefur átt í samskiptum við dómsmálaráðuneytið og óskað eftir því að farið yrði í jarðvinnu til að komast að malarbing þar sem talið er líklegt að hann sé að finna. Ljósmyndir eru sagðar til af jarðvegsþjöppu ofan í sprungunni og telja menn líklegt að Lúðvík sé þar í nágrenni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir hefur Grindavíkur­nefnd verið falið að finna óháðan aðila til að vinna verkið, þ.e. verkfræðistofu sem ekki hefur áður komið að málum í Grindavík, segir á mbl.is.