Þurfum að sinna forvörnum mun betur
Ungmennaþing á Suðurnesjum um ofbeldi í nánum samböndum
Rúmlega 80 nemendur af fyrsta og öðru ári Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum og úr efstu bekkjum allra grunnskóla á Suðurnesjum sóttu ungmennaþing Barnaheilla föstudaginn 6. febrúar. Þetta er fyrsta þingið af sex sem haldið verður víðs vegar um land á næstu vikum.
„Ungmennin sem mættu úr skólunum á Suðurnesjum voru hreint út sagt stórkostleg. Það var virkilega gaman og gagnlegt að heyra þeirra sýn á þetta mikilvæga málefni. Mörg þeirra töluðu um hversu mikið þau hefðu lært af því að eiga þetta samtal og hversu skemmtilegt þeim fannst að taka þátt í þinginu,“ sagði Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. „Það sló mig þó svolítið að heyra nokkur ungmenni nefna að þau hefðu verið að heyra um sum þeirra úrræða sem í boði eru fyrir bæði þolendur og gerendur ofbeldis í fyrsta sinn í dag. Það segir okkur að við þurfum að sinna forvörnum mun betur og auka verulega við kynningu á þeim úrræðum sem ungt fólk getur leitað í.”
Þátttakendum var skipt niður á átta borð með mismunandi umræðuefni sem sneri að ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Starfsfólk sem vinnur að ungmennastarfi í skólunum tók að sér að stýra borðumræðum um viðfangsefnin í litlum hópum. Reglulega færðu hóparnir sig svo á milli borða til að ræða málefnið út frá ýmsum hliðum og læra að þekkja muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, þekkja birtingamyndir ofbeldis, hvert bæði þolendur og gerendur geta leitað eftir aðstoð, hvaða úrræði eru í boði, við hverja er best að tala og eins um mikilvægi fræðslu og forvarna eins og Barnaheill standa að.
Nemendur voru sér og sínum skólum til mikillar fyrirmyndar, tóku virkan þátt í samtalinu og voru bæði málefnalegir og kurteisir. Ungmennaþinginu lauk svo um hádegi með veislu þar sem þátttakendum var boðið upp á pizzur og samlokur eftir góðar umræður. Allir fengu svo hleðslubanka og margnota taupoka að kveðjugjöf frá Barnaheillum.
Barnaheill fengu styrk frá dómsmálaráðuneytinu til að halda ungmennaþing á sex stöðum á landinu á næstu vikum. Næsta þing verður haldið 4. mars í Hafnarfirði, og svo 5. mars á Akureyri, 16. mars á Ísafirði, 24. mars á Egilsstöðum, og 26. mars á Selfossi.
Niðurstöður af þingunum öllum verða sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks á vordögum, með von um að þær nýtist til að byggja upp enn betra forvarnarstarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þá verða niðurstöðurnar kynntar á sérstöku málþingi Barnaheilla sem haldið verður 29. apríl.






