Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Útför Guðmundar Rúnars frá Keflavíkurkirkju
Frá útförinni í gær. VF/hilmarbragi
Miðvikudagur 11. febrúar 2026 kl. 08:50

Útför Guðmundar Rúnars frá Keflavíkurkirkju

Útför Guðmundar Rúnars Hallgrímssonar, skipstjóra og útgerðarmanns, var gerð frá Keflavíkurkirkju í gær, 10. febrúar. Séra Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur jarðsöng. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson fæddist 21. júlí 1936 í Hafnarfirði. Hann lést 27. janúar 2026 á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjanesbæ.

Hann var sonur hjónanna Guðrúnar Maríu Bjarnadóttur og Hallgríms Ingibergs Sigurðssonar. Systkini Guðmundar eru: Ingvar, Hrafnhildur, Hlöðver og Jóhann Sigurður. Þau eru öll látin.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Rúnar ólst upp í Hafnarfirði til þriggja ára aldurs er fjölskyldan flutti til Keflavíkur haustið 1939 og bjó hann þar alla tíð. Hann hóf sjómennsku fimmtán ára gamall.

Guðmundur Rúnar var valinn maður ársins á Suðurnesjum 1992 en þetta var í þriðja sinn sem blaðið stóð fyrir vali á manni ársins. Í viðtali við Víkurfréttir í ársbyrjun 1993 var rætt við Guðmund Rúnar um ævistarfið, sjómennskuna. Grípum niður í viðtalið.

-Kom aldrei til greina annað ævistarf?

„Ég held að það hafi aldrei verið neitt annað í hausnum á manni. Reyndar var ég oft í landi því ég var svo rosalega sjóveikur þegar ég var yngri. Um tíma lá við að þetta væri hreinlega ekki framkvæmanlegt vegna sjóveiki,“ sagði Guðmundur Rúnar og sýnir okkur ör á báðum augabrúnum sem rekja má til sjóveikinnar. Ástæðan fyrir örunum er sú að hann fékk sjóveikina svo í höfuðið að hann steinlá, eins og hann segir sjálfur. Í öðru tilfellinu datt hann í stigagangi niður í vélarrúm og einnig datt hann úti á dekki. „Maður stóð alltaf upp aftur og fór að vinna. Það var ekki um neitt annað að ræða“.

-Hvað svo?

„Svo bara hætti þetta einn góðan veðurdag,“ sagði Guðmundur Rúnar og gat fallist á að hafa verið þrjóskari en sjóveikin, svo hún varð að láta í minni pokann.

Hér er tengill á tölublaðið þar sem lesa má viðtalið í heild sinni.