Ný verslun Húsasmiðjunnar opnuð á Fitjum — myndir
Húsasmiðjan hefur opnað nýja verslun á Fitjum í Reykjanesbæ og var opnunarhóf haldið á fimmtudag. Verslunin er hönnuð samkvæmt nýrri, verðlaunaðri verslunarhönnun fyrirtækisins sem hlaut alþjóðleg DBA-hönnunarverðlaun árið 2023 og er verslunin sú þriðja sem opnar í því útliti.
„Við erum einstaklega stolt af nýju versluninni og viðbrögðin hafa vægast sagt verið frábær,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar. Hún segir jafnframt ánægjulegt að opna á þessum tímamótum en í ár eru 30 ár síðan Húsasmiðjan hóf starfsemi í Reykjanesbæ.
Í framhaldi af opnuninni stendur yfir opnunarhátíð og í dag, laugardag, dagskrá með tilboðum og uppákomum fyrir fjölskyldur, auk kynninga á vöruúrvali, meðal annars í verkfæradeild og málningardeild.
Myndasafnið hér að neðan var tekið í opnunarhófinu.





