Grindvíkingur með nýjungar í eldhúsinu á Dubliner
-humarpylsa, humarsalat og fleira nýtt á matseðli
Vilhjálmur Lárusson eða Villi á Sjómannastofunni Vör í Grindavík hefur tekið við eldhúsinu á veitinga- og skemmtistaðnum Dubliner og hefur sett saman nýjan matseðil. Dubliner opnaði á síðasta ári á hinu fræga Keflavíkurhorni, Hafnargötu 30, og hefur fengið mjög góðar móttökur.
Vilhjálmur segir að nýjum manni fylgi jafnan nýjungar. Á nýjum matseðli verður m.a. boðið upp á fisk og franskar en Villi segir að það séu hæg heimatökin að koma með ferskan fisk frá Grindavík. „En svo erum við með skemmtilegar nýjungar eins og humarpylsu. Þá erum við með kjúklingasalat og humarsalat að ógleymdum góðum hamborgurum. Svo er hægt að fá sér belgíska vöfflu með rjóma og gott kaffi,“ segir Villi en hann hefur frá upphafi COVID-19 rekið sjómannastofuna Vör í Grindavík en það er veitingastaður sem býður upp á heimilismat í hádeginu. „Það hefur verið áhugavert og skemmtilegt og gengið vel,“ bætir Grindvíkingurinn við.
Þá eru uppi ýmsar hugmyndir um fleiri nýjungar á Dubliner eins og kótilettukvöld, ýmiss konar pop-up kvöld og sunnudagskaffihlaðborð.
Við opnun Dubliner var lögð áhersla var lögð á að skapa hlýlegt andrúmsloft við endurbyggingu staðarins. Þar er hægt að fara í pílu og púl og horfa á alla leikina í beinni útsendingu á tíu sjónvarpsskjám. Dubliner fékk verðlaun frá Reykjanesbæ þegar staðurinn var valinn „Jólafyrirtæki Reykjanesbæjar 2025“.

Hér má sjá brot af úrvalinu á matseðli Dubliner.






