Samkaup fær reynslubolta úr Bónus
Samkaup og Nettó hafa ráðið tvo nýja lykilstjórnendur til starfa, báðir koma þeir frá Bónus þar sem þeir hafa starfað samanlagt í rúmlega hálfa öld. Ráðningarnar marka mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Samkaupa sem reka auk Nettó, verslanirnar; Prís, Heimkaup, Krambúðirnar, Kjörbúðirnar og 10-11.
Nýr rekstrarstjóri Nettó – Otti Þór Kristmundsson
Otti hefur þegar hafið störf sem rekstrarstjóri Nettó og Kjörbúðanna, en hann byrjaði sem starfsmaður Bónus árið 1990, aðeins ári eftir að Bónus opnaði sína fyrstu búð og hefur starfað í dagvöruverslun í 35 ár og um árabil sem rekstrarstjóri. Otti hefur því umfangsmikla reynslu af rekstri í matvöruverslun og þjónustustarfsemi almennt.
„Það er okkur sönn ánægja að fá reynslubolta eins Otta inn í stjórnendateymið. Hans reynsla og þekking mun styrkja verslanir okkar um allt land og við förum því sterkari inn í nýtt ár með hann í okkar teymi“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Samkaupa og Dranga.
Upplýsingatækni verður sjálfstætt svið – Steinar Jónas Kristjánsson framkvæmdastjóri
Um áramótin voru gerðar breytingar á skipulagi fjármálasviðs Samkaupa þar sem upplýsingatæknideild, sem hingað til hefur heyrt undir fjármálasvið, varð að sjálfstæðu sviði og hefur Steinar Jónas Kristjánsson verið ráðinn framkvæmdastjóri nýs sviðs
Steinar kemur til Samkaupa með tæplega 30 ára reynslu á sviði upplýsingatækni bæði hérlendis sem erlendis en hann hefur frá árinu 2003 leitt upplýsingatæknisvið Bónus. Hann býr yfir mikilli víðtækri reynslu af upplýsingatækni, verslunarlausnum og verkefnastjórnun.
„Markmið þessara breytinga er að gera upplýsingatæknina að sjálfstæðri og öflugri einingu innan Samkaupa til að styrkja rekstur og bæta þjónustu til viðskiptavina. Samkaup þjónustar yfir 60 verslanir um allt land og því mikill fengur að fá inn þennan liðsstyrk. Upplýsingatæknin er lykilþáttur í starfseminni og því mikilvægt að sviðið hafi skýrt hlutverk og styðji við langtímastefnu félagsins“ segir Auður.
Samkaup hf. er vaxandi verslunarfyrirtæki á dagvörumarkaði sem rekur 60 verslanir um allt land m.a. undir merkjum Nettó og Prís. Samkaup er dótturfélag Dranga hf. sem er móðurfélag framsækinna fyrirtækja á neytendamarkaði. Systurfélög Samkaupa eru Orkan og Lyfjaval.





