Magnús Orri gerir samning við RÚV um heimildarmynd frá Chile
Kvikmyndagerðarmaðurinn Magnús Orri Arnarson hefur undirritað samning við RÚV um kaup á nýrri heimildarmynd sem hann vinnur nú að. Myndin fjallar um Sumarheimsleika Special Olympics sem haldnir verða í Santiago í Chile í október árið 2027. Með samningnum hefur RÚV tryggt sér sýningarrétt á verkinu en áætlað er að myndin verði frumsýnd árið 2028.
Verkefnið er nú á frumstigi og fram undan er tveggja ára mikil og metnaðarfull vinna við að fylgja þessu stóra verkefni eftir. Magnús Orri segist í tilkynningu vera ótrúlega þakklátur fyrir það traust sem honum er sýnt með samningnum og hlakkar mikið til að deila þessari mikilvægu sögu með þjóðinni. Hann lýsir komandi vegferð sem stóru, krefjandi og spennandi ferðalagi sem hann hlakkar til að takast á við.
Samhliða vinnu við myndina leitar Magnús Orri nú leiða til að safna styrkjum fyrir verkefnið en markmiðið er að segja sögur sem skipta máli, opna nýja heima og sýna að allir geti stundað íþróttir óháð fötlun. Hann bendir á að framleiðsla sem þessi kosti mikla vinnu og fjármagn en hann trúi á verkefnið af öllu hjarta. Með honum í teyminu eru þau Anna Karólína Vilhjálmsdóttir og Jón Aðalsteinn og eru áhugasamir einstaklingar eða fyrirtæki sem vilja styrkja verkefnið eða eiga samstarf hvattir til að hafa samband við Magnús Orra.





