Ný framtíðarsýn kynnt fyrir útlit Græna iðngarðsins í Helguvík
Græni iðngarðurinn í Helguvík (Iceland Eco-Business Park) hefur kynnt nýja hönnun á ásýnd og framhlið iðngarðsins sem ætlað er að fanga auðkenni svæðisins til framtíðar. Hönnunin er verk Yasemin Kapkın, sem lauk meistaranámi í hönnun nýs umhverfis við Listaháskóla Íslands, en hún hóf störf við verkefnið í desember síðastliðnum. Markmiðið með framtíðarsýninni er að skapa samfellt og skýrt myndmál sem byggir á sjálfbærni og sveigjanleika eftir því sem fleiri fyrirtæki bætast í iðngarðinn. Frá þessu er greint á vef Græna iðngarðsins.
Í stað þess að gerbreyta núverandi iðnaðarhúsnæði byggir sýnin á því að aðlaga bygginguna að umhverfinu með tilliti til orkunýtni og varanleika. Lögð er áhersla á samfellu við núverandi steinsteypuvirki með notkun trefjasementplatna og utanáliggjandi einangrunarkerfis sem dregur úr orkunotkun án þess að raska burðarvirki eða innra rými hússins. Miðpunktur hönnunarinnar er hjarta iðngarðsins sem afmarkast af stálgrind og klæðningu úr kortenstáli, en það skapar sterkt en jafnframt hógvært byggingarlistaverk sem eldist vel með tímanum.
Efnisval endurspeglar umhverfissjónarmið þar sem notast er við meðhöndlaðan við til að mýkja ásýnd innganga og álplötur í einkennislit iðngarðsins til að samræma skilti og númeringu fyrirtækja. Þá er gert ráð fyrir endurunnu gleri í glugga og hurðir ásamt öflugum svörtum stálrömmum sem standast íslenska veðráttu. Lýsing er samþætt í hönnunina til að auka öryggi og læsileika á myrkum stundum en hún er lágvær og fellur vel að gróðri og gönguleiðum svæðisins.
Verkefnið er afrakstur góðs samstarfs við Listaháskóla Íslands og mun það halda áfram á árinu 2026. Nýr nemandi, Óðinn Finnsson-Bell, mun dvelja í sex vikur við iðngarðinn og rannsaka hvernig hægt er að nýta endurunnin efni í hönnunarskyni. Með þessari vegferð stefnir Græni iðngarðurinn að því að verða leiðandi í sjálfbærri atvinnuuppbyggingu og samfélagslegri hönnun á Suðurnesjum.





