Kappahl opnar í Krossmóa á Suðurnesjum
Mikil uppbygging er nú í gangi hjá sænska tískuvörumerkinu Kappahl á Íslandi en á næstu dögum opnar ný verslun í Krossmóa á Suðurnesjum.
Opnunin markar næsta skref í innleiðingu Kappahl á íslenskan markað eftir afar vel heppnaða opnun fyrstu verslunarinnar í Smáralind, þar sem fjölmenni mætti og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum. Áætlað er að um 5.000 manns hafi nú þegar lagt leið sína í verslunina sem opnaði síðasta laugardag.
„Við erum gríðarlega þakklát fyrir þær móttökur sem Kappahl hefur fengið hingað til. Það er ljóst að íslenskir viðskiptavinir kunna vel að meta samsetninguna af skandinavískri hönnun, góðum gæðum og hagkvæmu verði,“ segir Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Kappahl og Newbie á Íslandi, í frétt frá fyrirtækinu.
Suðurnes öflugur þáttur uppbyggingarinnar
Með opnun verslunarinnar í Krossmóa styrkir Kappahl enn frekar viðveru sína utan höfuðborgarinnar og gerir vörumerkið aðgengilegra fyrir íbúa Suðurnesja og nærliggjandi svæða.
„Suðurnesin eru mikilvægt og vaxandi markaðssvæði en eins og fólk veit er Reykjanesbær nú orðið stærsta bæjarfélag utan höfuðborgarinnar. Við sjáum því hér mikil tækifæri til uppbyggingar. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum á svæðinu og bjóða upp á fjölbreytt úrval fyrir alla fjölskylduna,“ segir Albert.
Sterk fjölskylduverslun með skandinavísk gildi
Kappahl var stofnað í Svíþjóð árið 1953 og er í dag eitt af leiðandi tískuvörumerkjum á Norðurlöndum með yfir 340 verslanir í Evrópu. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á sjálfbærni, meðal annars með notkun lífrænnar bómullar, rekjanleika í framleiðslu og ábyrg vinnubrögð í allri virðiskeðjunni.
Verslanir Kappahl bjóða upp á fatnað fyrir konur, karla og börn, allt frá sígildum grunnflíkum til tískufatnaðar og undirfatnaðar á hagkvæmu verði.
Samhliða opnun verslananna geta viðskiptavinir einnig verslað í gegnum netverslunina kappahl.is, sem er opin allan sólarhringinn.
Uppbygging um allt land
Opnunin í Krossmóa er hluti af stærra uppbyggingarferli þar sem stefnt er að því að opna alls átta Kappahl-verslanir og a.m.k. eina Newbie-verslun á Íslandi á næstu misserum. Gert er ráð fyrir að fjórar verslanir að meðtalinni versluninni í Krossmóa opni nk. laugardag kl. 12:00.
„Við erum rétt að byrja. Það eru spennandi tímar framundan og við hlökkum til að halda áfram að byggja upp Kappahl og Newbie sem sterk og traust vörumerki á Íslandi,“ segir Albert Þór Magnússon að lokum.





