Trúum á áframhaldandi uppbyggingu og bjarta framtíð samfélagsins á Suðurnesjum
— egir Birna Ósk Einarsdóttir forstjóri Húsasmiðjunnar
Húsasmiðjan hefur opnað nýja verslun á Fitjum í Reykjanesbæ. Verslunin er stór og björt og hönnuð samkvæmt nýrri, verðlaunaðri verslunarhönnun Húsasmiðjunnar sem hlaut alþjóðleg DBA-hönnunarverðlaun árið 2023. Verslunin í Reykjanesbæ er sú þriðja sem opnar í þessu nýja útliti og er það sérstaklega ánægjulegt skref þar sem í ár eru 30 ár síðan Húsasmiðjan hóf fyrst starfsemi í sveitarfélaginu.
„Við erum mjög ánægð með viðtökurnar bæði frá fagfólki á svæðinu og ekki síður frá heimafólki sem er í framkvæmdum og endurbótum. Suðurnesjabúar hafa ávallt tekið okkur vel enda fögnum við 30 ára starfsafmæli hér á svæðinu síðar á árinu.
Við undirbúning og hönnun verslunarinnar var vandað til verka. Hún er í nýju útliti, björt og aðgengileg, með heildstætt vöruúrval þar sem þú finnur allt til framkvæmda og heimilisins undir einu þaki.
Með opnun nýrrar verslunar viljum við sýna í verki að við trúum á áframhaldandi uppbyggingu og bjarta framtíð samfélagsins á Suðurnesjum,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir forstjóri Húsasmiðjunnar.
Í versluninni er öflug og rúmgóð verkfæradeild og hafa t.a.m. DeWalt og Stanley sett upp stóra deild. Þá er einnig mikið úrval frá þekktum gæðamerkjum á borð við Milwaukee, Makita, Black+Decker auk fleiri vörumerkja sem henta jafnt fagfólki sem heimafólki í framkvæmdum.
Mikil áhersla er lögð á þjónustu við fagfólk, meðal annars með skrúfu- og festingadeild og timbursölu sem hægt er að keyra í gegnum. Sölumenn Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ búa yfir áralangri reynslu í sérlausnum fyrir fagfólk, svo sem í utanhússklæðingum, gluggum, hurðum, timbri og plötum.
Einnig er í versluninni málningardeild með helsta úrvali Húsasmiðjunnar, þar á meðal LADY og Jotun Proff. Þá er gott úrval af vörum fyrir eldhús og baðherbergi, auk gólfefnadeildar þar sem finna má fjölbreytt úrval af parketi og flísum. Að lokum er árstíðadeild með grillum frá framleiðendum á borð við Weber, Char-Broil, Enders og Landmann. Jólaljósin verða svo að sjálfsögðu á sínum stað fyrir næstu jól.
Birna Ósk Einarsdóttir forstjóri Húsasmiðjunnar og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, opnuðu verslunina formlega með því að saga í sundur myndarlegan planka. Birna var sjónarmun á undan Kjartani, sem hafði þó fengið að æfa sig á sögina skömmu áður.
Að neðan eru myndir úr opnunarhófi Húsasmiðjunnar á dögunum.




