Pizzan- skipta í hinn 28. jan
Pizzan- skipta í hinn 28. jan

Fréttir

Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku
Þriðjudagur 3. febrúar 2026 kl. 06:44

Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku

Stofnuð hafa verið tvö ný svið innan HS Orku, annars vegar svið sjálfbærni og aðfangastýring ar og hins vegar svið auðlind a. T óku breytingarnar gildi um nýliðin áramót.
Ennfremur tekur nýr framkvæmdastjóri við sviði þróun ar og framkvæmd a í mars næstkomandi.
Finnur Sveinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hins nýja sviðs sjálfbærni og aðfangastýringar en hann hefur síðastliðin fjögur ár stýrt sjálfbærnideild fyrirtækisins auk
þess að annast viðskiptastjórn nýframkvæmda. Hið nýja svið undirstrikar vaxandi mikilvægi sjálfbærni hjá HS Orku.

Lilja Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri auðlinda. Ásbjörn Blöndal, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra þróunar - og auðlindasviðs um árabil, lætur af störfum síðar áárinu sökum aldurs. Lilja hefur leitt deild auðlindastýringar HS Orku síða stliðin tvö ár.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þann 1. mars tekur Yngvi Guðmundsson við sem framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda af Sunnu Björg Helgadóttur, sem ráðin hefur verið forstjóri Rio Tinto (ISAL) á Íslandi. Yngvi er yfirverkfræðingur HS Orku en hann hefur gegnt því starfi frá árinu 2017 og gjörþekkir því alla starfsemi fyrirtækisins.