Pizzan- skipta í hinn 28. jan
Pizzan- skipta í hinn 28. jan

Íþróttir

Metþátttaka í fyrstu umferð Dartung pílunnar
Mánudagur 2. febrúar 2026 kl. 10:56

Metþátttaka í fyrstu umferð Dartung pílunnar

Síðastliðna helgi fór fram fyrsta umferð Dartung, mótaraðar sem er ætluð ungmennum á aldrinum 9–13 ára og 14–18 ára. Þátttakan var með allra mesta móti en alls tóku 76 ungmenni alls staðar af landinu þátt í mótinu. Keppt var í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar að Keilisbraut á Ásbrú.

Pílufélag Reykjanesbæjar átti þrjá keppendur í efstu sætum. Birkir Frosti Kjartansson hafnaði í 2. sæti í flokki drengja 9–13 ára, en í flokki stúlkna sama aldurs deildu Ísabella Margrét og Ísabella Diljá Bjarnadóttir 3.–4. sæti.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Mikil gróska er í pílukasti í Reykjanesbæ um þessar mundir og er félagið í örum vexti. Í dag æfa tæplega 50 ungmenni pílukast hjá félaginu. Æfingar eru gjaldfrjálsar fyrir börn og fara fram á mánudögum og fimmtudögum.

Fram undan er stórmót fyrir 18 ára og eldri, Reykjanes Open, sem fram fer í Ljónagryfjunni dagana 27.–28. febrúar. Þar munu sterkustu pílukastarar landsins keppa og verður keppendalisti fullskipaður með 128 keppendum. Nánari upplýsingar má finna á www.reykjanesopen.is.