ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Viðskipti

Húsasmiðjan stækkar í Reykjanesbæ
Gísli Jóhannsson rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ. VF/hilmarbragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 12. febrúar 2026 kl. 12:37

Húsasmiðjan stækkar í Reykjanesbæ

Saga Húsasmiðjunnar spannar orðið næstum 30 ár á Suðurnesjum. Hún opnaði verslun á Smiðjuvöllum í Keflavík í nóvember 1996 en flutti sig um set í apríl 2008 og opnaði stóra og glæsilega verslun og timbursölu á Fitjum. Árið 2015 voru gerðar breytingar á versluninni og hún fór í minna rými. Nú eru aftur breytingar og Húsasmiðjan fer í stærra rými og hefur gjörbreytt rýminu - og verslunin hefur við það öðlast nýtt líf. „Þetta er algjör bylting,“ segir Gísli Jóhannsson, rekstrarstjóri verslunarinnar, sem lýsir breytingunni sem umskiptum úr „lítilli, þröngri búð“ yfir í opið og bjart verslunarrými með skýrri deildaskiptingu og betra flæði um alla verslunina.

Nýja hönnunin er sögð í takt við nýlegar endurbætur Húsasmiðjunnar á öðrum stöðum, meðal annars á Akureyri og Selfossi. Gísli bendir á að Akureyrarbúðin hafi á sínum tíma fengið bresk hönnunarverðlaun og að sama „hugmyndafræði“ sjáist nú í Reykjanesbæ: lægri hillur, betri yfirsýn og deildir sem „blasa við“ um leið og fólk kemur inn. Málningardeildin er þar sérstaklega nefnd. Hún var áður „úti í horni“ en er nú blasir hún við viðskiptavinum þegar þeir koma inn í verslunina. Þá er einnig mjög stór verkfæradeild þar sem fagfólk og fólk í framkvæmdum finnur ótrúlega mikið úrval frá Dewalt, Stanley, Makita, Milwaukee og Black+Decker.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Meira úrval og fleiri hendur

Með stækkuninni fylgir aukið vöruúrval, sérstaklega í verkfærum og tengdum vöruflokkum fyrir fagfólk og fólk í framkvæmdum. Gísli segir að viðbrögðin við stærri búð hafi verið mjög góð frá fyrsta degi. Verslunin opnaði á mánudaginn í síðustu viku og það hefur verið mikið rennerí alla daga, segir Gísli. Hann segir að Suðurnesjamenn hafi lengi vitað að breytingar væru í vændum og spurningin síðustu mánuði hafi iðulega verið einföld: hvenær stækkið þið?

Starfsmannahaldið hefur einnig verið styrkt. Gísli hefur bætt við tveimur stöðugildum, auk þess að fjölga á vöktum á annatímum, og leggur áherslu á að halda í reynslu og sérþekkingu innan verslunarinnar. Einar Lárus Ragnarsson er fyrrverandi verslunarstjóri Húsasmiðjunnar á Fitjum og vörustjóri í málningu hjá Húsasmiðjunni í 20 ár. Hann hafi komið inn tímabundið til að hjálpa við uppsetningu deildarinnar. Hann verður viðskiptavinum innan handar út febrúar og ætlar svo að koma aftur í sumar sem sumarstarfsmaður á Fitjum. Þá hefur einnig verið horft til frekari styrkingar í timbursölunni og ekki veitt af, segir Gísli

Sýnileiki skiptir miklu máli

Spurður um stöðuna á markaðnum, með háa vexti og kólnun á fasteignamarkaði, segir Gísli að verktakar haldi vissulega aðeins að sér en samt séu þeir „á fullu“ við að klára verkefni. Húsasmiðjan í Reykjanesbæ hafi ekki orðið mikið vör við samdrátt og hann telur að betri aðkoma, sýnileiki og rými skipti miklu máli til framtíðar: áður hafi þrengsli og bílastæðavandi einfaldlega fælt hluta viðskiptavina frá.

Nú sé verslunin hins vegar „svo vel merkt“ að skiltin „lýsi upp Njarðvíkurnar“ og sjáist langt að, og verið sé að fegra og bæta aðkomuna enn frekar.

Stækkunin kostaði Gísla eitt Evrópumót

Gísli þurfti að færa miklar persónulegar fórnir í janúar þegar flutningar á versluninni stóðu sem hæst. Evrópumótið í handknattleik stóð yfir á sama tíma en það var ekki inni í myndinni að taka sér frí frá vinnu til að fara og vera á meðal áhorfenda.

„Síðast missti ég af móti 2016… en ég hef verið á mótum síðan 2010,“ segir hann. Í ár var það ekki í kortunum. Verkefnið að flytja og opna nýja verslun var einfaldlega of stórt. Í stað þess að vera í stúkunni fylgdist hann með leikjunum úr vinnunni: kveikt var á tölvu, tvö sjónvörp voru í gangi inni í búð og starfsfólk hélt áfram að vinna á meðan stemningin sveiflaðist með úrslitum.

„Maður fann fyrir því,“ segir Gísli um að vera heima þegar hann er vanur að vera á staðnum en bætir við að það hafi líka verið „nóg að gera“ og ábyrgðin á verkefninu hafi ráðið.

Tilboð og formleg opnun

Í kjölfar flutningsins er stefnt á opnunarstemningu í þessari viku með tilboðum og kynningum í versluninni og hefst gleðin föstudaginn 13 mars og verður heilmikið um að vera á laugardaginn 14. febrúar. Gísli segir að frá föstudegi verði „tilboð út í eitt“ og um helgina verði mikil dagskrá, íspinnar og blöðrudýr fyrir börnin, Maja Ben með litaráðgjöf í málningardeildinni, svo eitthvað sé nefnt.











Svipmyndir úr nýrri og stærri verslun Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ. VF/hilmarbragi