Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Viðskipti

Þórður Þorbjörnsson ráðinn verslunarstjóri BYKO í Reykjanesbæ
Þórður Þorbjörnsson hefur verið ráðinn verslunarstjóri BYKO í Reykjanesbæ.
Fimmtudagur 5. febrúar 2026 kl. 13:02

Þórður Þorbjörnsson ráðinn verslunarstjóri BYKO í Reykjanesbæ

Þórður Þorbjörnsson hefur verið ráðinn verslunarstjóri BYKO í glænýrri verslun fyrirtækisins við Fitjabraut og hefur hann þegar hafið störf.

Þórður býr yfir víðtækri og traustri reynslu og starfaði í áratugi hjá Íslenskum aðalverktökum hf. þar sem hann gegndi meðal annars störfum innkaupastjóra, innkaupafulltrúa og birgðastjóra. Þórður er uppalinn í Keflavík og hefur verið virkur í félags- og stjórnarstörfum, meðal annars innan íþróttahreyfingarinnar í Keflavík.

BYKO hefur þjónustað íbúa á Suðurnesjum, jafnt einstaklinga sem fagaðila, frá 1996 og hefur fyrirtækið verið í fyrsta sæti í Íslensku ánægjuvoginni níu ár í röð.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk