Ný verslun Húsasmiðjunnar opnar í Reykjanesbæ
Húsasmiðjan hefur opnað nýja verslun á Fitjum í Reykjanesbæ. Verslunin er stór og björt og hönnuð samkvæmt nýrri, verðlaunaðri verslunarhönnun Húsasmiðjunnar sem hlaut alþjóðleg DBA-hönnunarverðlaun árið 2023. Verslunin í Reykjanesbæ er sú þriðja sem opnar í þessu nýja útliti og er það sérstaklega ánægjulegt skref þar sem í ár eru 30 ár síðan Húsasmiðjan hóf fyrst starfsemi í sveitarfélaginu.
„Við erum einstaklega stolt af nýju versluninni og viðbrögðin hafa vægast sagt verið frábær. Það er sérstaklega ánægjulegt að opna nýja verslun í Reykjanesbæ á þessum tímamótum, þar sem Húsasmiðjan fagnar 30 ára afmæli á Reykjanesi síðar á árinu. Suðurnesjabúar hafa frá upphafi tekið Húsasmiðjunni afar vel og það hefur verið virkilega ánægjulegt að finna þann mikla áhuga sem nýja verslunin hefur fengið,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir forstjóri Húsasmiðjunnar.
Hún bætir við að í vikunni sé opnunarhátíð sem hefst föstudaginn 13. febrúar.
„Í tilefni opnunarinnar munum við standa fyrir glæsilegri opnunarhátíð allan febrúar. Hátíðin hefst föstudaginn 13. febrúar og á laugardeginum verður flott dagskrá þar sem við bjóðum íbúum á Suðurnesjum að fagna með okkur. Þar verða hagstæð tilboð, litaráðgjöf, blöðrurdýr og íspinnar fyrir börnin, verkfærakynning og fleira,“ segir Birna.
Í versluninni er öflug og rúmgóð verkfæradeild og hafa t.a.m. DeWalt og Stanley sett upp stóra deild. Þá er einnig mikið úrval frá þekktum gæðamerkjum á borð við Milwaukee, Makita, Black+Decker auk fleiri vörumerkja sem henta jafnt fagfólki sem heimafólki í framkvæmdum.
Mikil áhersla er lögð á þjónustu við fagfólk, meðal annars með skrúfu- og festingadeild og timbursölu sem hægt er að keyra í gegnum. Sölumenn Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ búa yfir áralangri reynslu í sérlausnum fyrir fagfólk, svo sem í utanhússklæðingum, gluggum, hurðum, timbri og plötum.
Einnig er í versluninni málningardeild með helsta úrvali Húsasmiðjunnar, þar á meðal LADY og Jotun Proff. Þá er gott úrval af vörum fyrir eldhús og baðherbergi, auk gólfefnadeildar þar sem finna má fjölbreytt úrval af parketi og flísum. Að lokum er árstíðardeild með grillum frá framleiðendum á borð við Weber, Char-Broil, Enders og Landmann. Jólaljósin verða svo að sjálfsögðu á sínum stað fyrir næstu jól.
Með nýju versluninni í Reykjanesbæ styrkir Húsasmiðjan enn frekar stöðu sína sem heildarlausn fyrir fagfólk og fólk í framkvæmdum – allt undir einu þaki.







