ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Drekadalur er framtíð
Laugardagur 14. febrúar 2026 kl. 13:40

Drekadalur er framtíð

Nýi leikskólinn Drekadalur í Dalshverfi 3 í Innri Njarðvík var formlega vígður föstudaginn 6. febrúar, á Degi leikskólans. María Petrína Berg, leikskólastjóri Drekadals, ávarpaði gesti við athöfnina og sagði daginn sérstakan fyrir bæði börn, starfsfólk og samfélagið allt.

Í ræðu sinni rifjaði María Petrína upp að 6. febrúar sé merkisdagur í sögu leikskólastarfs á Íslandi, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök. Markmið Dags leikskólans sé að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og beina athygli að því faglega og metnaðarfulla starfi sem unnið er í leikskólum landsins dag hvern.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

„Það er óhætt að segja að við höfum beðið spennt eftir þessum degi og lagt okkur öll fram við að skapa hlýlegt, öruggt og fallegt umhverfi fyrir börnin og starfsfólkið okkar,“ sagði hún og bætti við að Drekadalur væri ekki aðeins húsnæði heldur framtíð barnanna, samfélagsins og allra sem að því koma.

Fyrsti áfangi opnaður – fleiri heimastofur bætast við í vor

Nú hefur fyrsti áfangi leikskólans verið tekinn í notkun, með þremur heimastofum sem bera nöfnin Hákot, Stapakot og Tjarnakot. Í seinni áfanga er ráðgert að heimastofurnar Drekakot og Móakot bætist við, og er áformað að þær opni í vor.

Heimastofurnar eiga að mynda heild sem tengist umhverfi og staðháttum hverfisins. Hreyfisalurinn, þar sem athöfnin fór fram, ber nafnið Njarðvík, sem undirstrikar tengsl skólans við nærsamfélagið. Þá var sérstaklega vikið að útisvæðinu, sem lýst var sem stórglæsilegu og fjölbreyttu ævintýrasvæði þar sem öryggi og fjölbreytileiki sé í fyrirrúmi.

Þakkir til fjölmargra aðila

María Petrína þakkaði öllum sem komu að uppbyggingu skólans, frá hönnuðum og verktökum til sveitarfélagsins, foreldra og starfsfólks. Sérstakar þakkir færði hún Rósu Írisi Ólafsdóttur, aðstoðarskólastjóra, fyrir gott samstarf og fagmennsku, og Hreini Ágústi Kristinssyni, deildarstjóra eignarumsýslu Reykjanesbæjar, fyrir ómetanlegt samstarf og festu í verkefninu frá upphafi til enda. Þá nefndi hún einnig Helga Arnarson, sviðstjóra menntasviðs Reykjanesbæjar, og Ingibjörgu Bryndísi Hilmarsdóttur, leikskólafulltrúa, fyrir stuðning og góða samvinnu.

Hún tók jafnframt fram að foreldrahópurinn í Drekadal hefði verið einstakur og jákvæðni þeirra og samvinna leiðarljós í vegferð síðasta árs.

Börn klipptu á borðann

Að lokinni ræðu Maríu Petrínu tók Helgi Arnarson, sviðstjóri menntasviðs Reykjanesbæjar, við og í kjölfarið Hreinn Ágúst Kristinsson, deildarstjóri eignarumsýslu. Þá kom elsti árgangur leikskólans, sem í eru sjö börn, fram og tók þátt í athöfninni með því að klippa formlega á borðann.

Drekadalur opnar