Fundað um almyrkva í Suðurnesjabæ
Suðurnesjabær boðar hagsmunaaðila í sveitarfélaginu til kynningar- og umræðufundar um almyrkvann sem verður 12. ágúst næstkomandi. Fundurinn er haldinn í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og samstarfshóp svæðisins um almyrkvann og fer fram föstudaginn 13. febrúar kl. 10:00–11:30 í Samkomuhúsinu í Sandgerði.
Á dagskrá er meðal annars kynning frá Sævari Helga Bragasyni um atburðinn, umfjöllun um verkefni á landsvísu og fyrir áfangastaðinn Reykjanes og Suðurnesjabæ, auk innlegga frá fulltrúum Markaðsstofu Reykjaness, Suðurnesjabæjar, Reykjanes jarðvangs og lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Þá verða tekin fyrir mál á borð við útsýnisstaði og þjónustu, umferðarskipulag, mögulegar lokanir og viðbragð, fræðslu- og kynningarmál og umræður í lok fundar.
Markmiðið er að upplýsa um verkefni sem þegar eru komin af stað, en ekki síður að efla samtal og samvinnu á svæðinu svo upplifun vegna almyrkvans verði góð fyrir alla. Jafnframt er bent á að sambærilegir fundir verða haldnir í öðrum sveitarfélögum.
Hér er mjög fróðleg síða um almyrkvann og er myndin með fréttinni fengin þaðan: https://solmyrkvi2026.is/sogur/kort-af-islandi-fyrir-solmyrkvann-2026





