Veðurstofan þurrkar af linsum myndavéla við Sundhnúkagígaröðina
- Tveir nýir drónar prófaðir á Reykjanesskaganum
Nú á dögunum keypti Veðurstofan tvo nýja dróna fyrir vöktunar- og mælingarverkefni. Annar er búinn tvöfaldri myndavél, bæði litmyndavél og hitamyndavél, og hinn er búinn sérhæfðri kortlagningarmyndavél með aðdráttarlinsu.
Með þessum búnaði hefur Veðurstofan nú burði til að framkvæma afar nákvæmar yfirborðsmælingar, kortleggja óaðgengileg og hættuleg svæði og fá skýra yfirsýn yfir aðstæður á vettvangi. Hitamyndavélin mun nýtast við hraunvöktun og áhættumat á jarðhitasvæðum. Endurteknar mælingar geta sýnt breytingar á yfirborði og hitastigi.
Í síðustu viku var farið á Reykjanes þar sem nýju græjurnar voru prófaðar. Jafnframt voru linsur myndavéla sem horfa yfir Sundhnúksgígaröðina hreinsaðar, segir í færslu á samfélagsmiðlum stofnunarinnar.








