Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja hættur
Miðvikudagur 11. febrúar 2026 kl. 14:13

Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja hættur

Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, Sigurður Skarphéðinsson, lauk störfum á mánudag eftir 16 ár í embættinu í þeirri stöðu. Slökkviliðsstjórinn Eyþór Rúnar Þórarinsson segir að starfslokin hafi verið sameiginleg niðurstaða sem hafi mótast í viðræðum síðustu vikur og verið gengið frá í síðustu viku. „Þetta var allt í sátt og samlyndi,“ er haft eftir Eyþóri á visir.is í dag. Sigurður vildi ekki tjá sig um málið.

Starfslokin koma í kjölfar þess að kvörtun Sigurðar til umboðsmanns Alþingis vegna ráðningar slökkviliðsstjóra árið 2024 var afgreidd. Sigurður hélt því fram að ómálefnaleg sjónarmið, þar á meðal fjölskyldutengsl, hefðu ráðið för þegar Eyþór var ráðinn. Umboðsmaður taldi þó ekki forsendur til að kanna ráðninguna frekar, en benti á að betur hefði átt að skrá og varðveita gögn úr ráðningarferlinu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Óljóst er hvort staða varaslökkviliðsstjóra verður auglýst, en Eyþór segist ætla að setja í starfið til að byrja með í samráði við Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga, samkvæmt umfjöllun á visir.is.