Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Páll í hópi blaðamanna sem fengu gullmerki BÍ
Af þeim fjórtán sem voru heiðraðir voru 12 viðstaddir. Hér eru þeir ásamt Sigríði Dögg, formanni Blaðamannafélags Íslands. Ljósmynd: Blaðamannafélag Íslands
Laugardagur 14. febrúar 2026 kl. 13:38

Páll í hópi blaðamanna sem fengu gullmerki BÍ

Fjórtán félagar í Blaðamannafélagi Íslands sem helgað hafa lífsstarf sitt blaðamennsku og/eða hagsmunum blaðamannastéttarinnar voru heiðraðir með gullmerki félagsins 29. janúar sl. Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, var einn þeirra.

Merkið hefur verið veitt nokkuð reglulega, að meðaltali á um fimm ára fresti, frá árinu 1982. Það var síðast veitt 2022 og þar áður árið 2017 en alls hafa 75 blaðamenn nú hlotið Gullmerki BÍ.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Af þeim fjórtán sem voru heiðraðir voru 12 viðstaddir. Þeir sem voru heiðraðir að þessu sinni eru:

Arnar Páll Hauksson

Árni Sæberg Kristjánsson

Bogi Ágústsson

Broddi Broddason

Friðrik Þór Guðmundsson

Guðmundur Sv. Hermannsson

Gísli Sigurgeirsson

Helgi Bjarnason

Hjálmar Jónsson

Jón Guðmar Hauksson

Páll Hilmar Ketilsson

Skapti Hallgrímsson

Sigurður Már Jónsson

Þorsteinn J Vilhjálmsson

Félagar þessir uppfylla skilyrði um að hafa ýmist helgað lífsstarf sitt blaðamennsku eða hagsmunum blaðamannastéttarinnar. Gullmerkið var veitt við sérstaka athöfn í sal BÍ. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, veitti merkin fyrir hönd stjórnar.

Þess má geta að af þeim 75 blaðamönnum sem hlotið hafa gullmerki eru aðeins 9 konur. Að þessu sinni voru eingöngu karlar sem uppfylltu skilyrðin sem endurspeglar stöðu kvenna í blaðamennsku í fyrri tíð. Í dag eru um 57% starfandi blaðamanna í BÍ karlar og 43% konur.

Páll Ketilsson ritstjóri Víkurfrétta með gullmerki Blaðamannafélags Íslands sem hann fékk fyrir 40 ára starf við blaðamennsku.