Sporthúsið
Sporthúsið

Íþróttir

Grindvíkingar erfiðir og langefstir
Jemery Pargo og Jordan Semple voru gríðarlega öflugir í Blue höllinni. Myndir/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 13. febrúar 2026 kl. 22:06

Grindvíkingar erfiðir og langefstir

Grindvíkingar tróna á toppi Bónus deildar karla í körfubolta eftir sigur á Keflavík í Blue höllinni. Grindvíkingar eru lang efstir með 30 stig en Keflavík er í 5.-6. sæti ásamt KR. Njarðvík er í 9. sæti með 12 stig en átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina.

Keflvíkingar söknuðu Remy Martin sem meiddist í síðasta leik og það munar um slíkt gegn efsta liði deildarinnar sem var að styrkja sig enn frekar með Kanaskiptum.

Fyrsti leikhluti var jafn en gestirnir unnu annan leikhluta með 18 stigum, 18-30 og staðan í hálfleik 42-59.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Keflvíkingar gáfust ekki upp og voru oft nálægt því að minnka muninn verulega en það vantaði alltaf aðeins upp á ok í lokin var munurinn sex stig, UMFG í vil, 99-105.

Grindvíkingar eru með gríðarlega sterka útlendinga, Jordan Semple skoraði 27 og tók 7 fráköst, Jemery Pargo sem er aftur og nýkominn var með 24 stig, Daniel Mortensen 22/11 fráköst og Deandre Kane var mættur aftur eftir meiðsli og skoraði 11 stig. Þá komu Íslendingarnir Kristófer Breki, Valur Orri Valsson og Alexander V. Þorvaldsson sterkir inn.

Mirza Bulic skoraði með hjá Keflavík, 22/10 fráköst, Egor Koulechov var með 17/7 fráköst og Halldór Garðar Hermannsson skoraði 16 stig og 8 stoðsendingar. Keflvíkingar fá hrós fyrir að berjast áfram af fullum krafti þrátt fyrir að vera 17 stigum undir í hálfleik. Svo er engin spurning að það munar um það að vera án sterks leikmanns eins og Remy Martin.

Keflavík-Grindavík 99-105 (24-23, 18-36, 30-26, 27-20)

Keflavík: Mirza Bulic 22/10 fráköst, Egor Koulechov 17/7 fráköst/5 stoðsendingar, Halldór Garðar Hermannsson 16/4 fráköst/8 stoðsendingar/5 stolnir, Hilmar Pétursson 15, Jaka Brodnik 12, Ólafur Björn Gunnlaugsson 9, Craig Edward Moller 8/6 fráköst/6 stoðsendingar, Eyþór Lár Bárðarson 0, Daniel Eric Ottesen Clarke 0, Nikola Orelj 0, Jakob Máni Magnússon 0, Frosti Sigurðarson 0.
Grindavík: Jordan Semple 27/7 fráköst, Jeremy Raymon Pargo 24/4 fráköst/8 stoðsendingar, Daniel Mortensen 22/11 fráköst, Deandre Donte Kane 11/6 stoðsendingar, Kristófer Breki Gylfason 8/5 fráköst, Valur Orri Valsson 7, Ragnar Örn Bragason 6, Alexander Veigar Þorvaldsson 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0, Ólafur Ólafsson 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Birgir Örn Hjörvarsson
Áhorfendur: 850.

Valur Valsson mætti sínum gömlu félögum. Hilmar Bragi tók myndir í leiknum.

Mirza Bulic skoraði 22 og tók10 fráköst fyrir Keflavík.

Það var hart barist í leik Keflavíkur og UMFG.

Hilmar Pétursson í harðri baráttu við Grindjána.

Deandre Kane er mættur aftur á fjalirnar með Grindvíkingum.