ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Íþróttir

Slæmar fréttir af Birnu
Birna var í leik í úrslitakeppninni gegn Stjörnunni 2024 þegar hún meiddist.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 15. febrúar 2026 kl. 12:05

Slæmar fréttir af Birnu

Keflvíkingurinn og landsliðsmiðherjinn í körfubolta, Birna Valgerður Benónýsdóttir, telur litlar líkur á því að hún mæti aftur til leiks en hún hefur verið frá keppni síðan vorið 2024 þegar hún meiddist alvarlega á hné. Birna greinir frá þessu á Facebook síðu sinni.

„Körfubolti hefur verið risastór hluti af lífi mínu síðan ég var 5 ára. Eins og margir vita sleit ég krossband í maí 2024 og hef síðan þá farið í þrjár aðgerðir á hnénu. Eftir síðustu aðgerð fékk ég þær fréttir að skaðinn væri alvarlegri en áður var talið og að mjög ólíklegt sé að ég muni stíga aftur á parketið. Verandi þrjósk og ákveðin ætla ég þó ekki að útiloka neitt í framtíðinni – en þetta er staðan í dag. Eðlilega er þetta mikið áfall og mun taka tíma fyrir mig að vinna úr þessu. Næstu mánuðir fara í endurhæfingu og ég held áfram að taka þetta einn dag í einu,“ segir Birna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk