Fjölbrautaskóli Suðurnesja í öðru sæti
Val á Stofnun ársins 2025 var tilkynnt á hátíð Sameykis þann 12. febrúar en titlana Stofnun ársins og Stofnun ársins - borg og bær hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í könnun Sameykis meðal starfsmanna þeirra. Könnunin náði til starfsmanna í opinberri þjónustu hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja varð í 2. sæti í flokki stórra ríkisstofnana í könnuninni en í síðustu þremur könnunum var skólinn í efsta sæti í þessum flokki. Stærðarflokkarnir eru stofnanir með færri en 40 starfsmenn, stofnanir með 40-89 starfsmenn og stofnanir með 90 eða fleiri starfsmenn. Fimm efstu stofnanir í hverjum flokki hljóta titilinn Fyrirmyndarstofnun og fær skólinn þann titil nú í 10. sinn á síðustu tólf árum.
Það voru Kristján Ásmundsson skólameistari og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari sem tóku við viðurkenningunni fyrir okkar hönd.





