Ný vefsíða Ísland Duty Free í loftið
Aftur hægt að panta á netinu og sækja í brottfararverslun
Ísland Duty Free, sem rekur komu- og brottfararverslanir á Keflavíkurflugvelli, hefur opnað nýja vefsíðu, www.islanddutyfree.is. Á síðunni er að finna allar upplýsingar um vöruúrval, tilboð og verð á vörum sem eru til sölu í verslununum.
Ísland Duty Free tók yfir komu- og brottfararverslanirnar í maí 2025. Síðan þá hafa verið gerðar ýmsar breytingar á útliti og vöruúrvali verslananna en framkvæmdum á að ljúka í sumarlok.
Tollkvótareiknivél er á síðunni sem farþegar geta nýtt sér til að reikna út hve mikið áfengi má kaupa og koma með til landsins. Auk reiknivélarinnar eru fjölmargar nýjungar á síðunni og þar verður til að mynda alltaf hægt að finna upplýsingar um þau tilboð sem eru á boðstólum hverju sinni sem og vöruverð almennt.
Gerðar voru breytingar á áfengis- og tóbakslögum 2023 sem gerir það að verkum að ekki er sama verð á þessum vörum í komu- og brottfararverslun. „Þessar upplýsingar er nú að finna á síðunni og geta neytendur flett upp verði í hvorri búð fyrir sig,“ segir Svava.
Hægt er að panta á netinu og sækja vörur í brottfararverslun allt að 10 klukkustundum fyrir brottför.
„Við viljum auðvelda fólki sporin og auka á vellíðan þess í verslununum. Við leggjum mikla áherslu á að upplifun fólks sé góð og viljum bjóða farþegum Keflavíkurflugvallar upp á fjölbreytt vöruúrval á hagstæðu verði. Við hvetjum viðskiptavini til að nýta sér alla þá þjónustu sem við bjóðum upp á, hvort sem það er að panta fyrirfram á heimasíðunni eða hnippa í starfsfólk okkar, sem er sérþjálfað, og fá aðstoð í verslunum,“ segir Hanna Sigríður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri vörusviðs og markaðsmála.
Íslenskum vörum er gert sérstaklega hátt undir höfði en einnig þekktum vörumerkjum sem aldrei áður hafa fengist á Íslandi. „Þar sem við erum hluti af alþjóðlegu fjölskyldufyrirtæki þá höfum við aðgang að sterku innkaupaneti sem gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreyttara vöruúrval en áður og á mjög hagstæðu verði, neytendum til hagsbóta á sama tíma og íslensku vörurnar fá sérstakan sess hjá okkur,“ segir Hanna.
Meðal vörumerkja sem nú fást í fyrsta sinn hér á landi er kóreska húðvörumerkið Laneige, ilmir frá Jo Malone London og Hermés.
Eins og fyrr segir á framkvæmdum í verslunum að ljúka í lok sumars. „Við hlökkum mikið til og stefnum á að halda upp á þau tímamót með áberandi hætti,“ segir Hanna. Þangað til hvetjum við fólk til að skoða vefsíðuna okkar og vöruúrvalið því það á bara eftir að verða fjölbreyttara eftir því sem á líður.“






