Mannlíf

Kinsey Rose kemur á Bryggjuna í Grindavík 9. maí
Þriðjudagur 24. febrúar 2026 kl. 08:58

Kinsey Rose kemur á Bryggjuna í Grindavík 9. maí

Bandaríska kántrýsöngkonan Kinsey Rose stígur á svið á Bryggjunni í Grindavík laugardaginn 9. maí 2026 í tengslum við Iceland Country Music Festival. Húsið opnar klukkan 18:30 og boðið verður upp á kvöld með mat og tónleikum.

Kinsey Rose kemur frá Nashville og vakti mikla athygli þegar hún sló í gegn í The Voice USA (21. sería). Hún hefur einnig unnið með stórnöfnum í kántrýheiminum, þar á meðal Vince Gill, og er þetta annað árið í röð sem hún heimsækir Ísland.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Á Bryggjunni verður boðið upp á „alvöru kántrýstemningu“ með glæsilegu hlaðborði með innblæstri úr bandarískri matargerð og tónlist í heimsklassa flutningi með öflugri hljómsveit.

Sérstakir gestir

Með Kinsey Rose á sviðinu verða einnig tveir sérstakir gestir:

  • Axel O, kántrýsöngvari og lagahöfundur sem hefur unnið með Kinsey Rose og gefið út dúettlög með henni.

  • Rúnar Eff, sem margir þekkja meðal annars úr Söngvakeppni RÚV.

Hljómsveit kvöldsins

  • Sigurgeir Sigmundsson – pedal steel og gítar

  • Jóhann Ásmundsson – bassi

  • Kjartan Baldursson – gítar

  • Dan Cassidy – fiðla og gítar

  • Ásmundur Jóhannsson – trommur

Tónleikarnir fara fram á Bryggjunni, Miðgarði 2 í Grindavík og miðaverð er 15.900 kr. fyrir mat og tónleika. Bent er á að takmarkað sætaframboð sé í boði og gestir hvattir til að tryggja sér miða tímanlega.