Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Bæjarráð Voga lýsir alvarlegum áhyggjum af flutningi heilbrigðiseftirlits til ríkisins
Þriðjudagur 24. febrúar 2026 kl. 09:52

Bæjarráð Voga lýsir alvarlegum áhyggjum af flutningi heilbrigðiseftirlits til ríkisins

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt ályktun þar sem lýst er yfir „alvarlegum áhyggjum“ af fyrirhuguðum breytingum á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 18. febrúar 2026, þar sem lagðar voru fram kynningar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Atvinnuvegaráðuneytinu og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, auk uppfærðs minnisblaðs frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.

Samkvæmt fyrirhuguðum breytingum er gert ráð fyrir að færa verkefni heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til ríkisins frá 1. janúar 2027, að undanskildum fáeinum verkefnum sem myndu flytjast til sveitarfélaga. Bæjarráð telur að frumvarpið og undirbúningur málsins standist ekki kröfur um vandaða löggjöf og heildstæða greiningu, þar sem skortir mat á áhrifum á lýðheilsu, matvælaöryggi, viðbragðsgetu, þjónustu og fjárhag sveitarfélaga.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Bæjarráð varar við uppbroti eftirlits milli ríkisstofnana, lengri boðleiðum, tvíverknaði og verulegri hættu á þjónusturofi. Þá gagnrýnir ráðið að tekjuberandi verkefni færist til ríkisins á meðan kostnaðarsöm, tekjulaus verkefni sitji eftir hjá sveitarfélögum. Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að draga frumvörpin til baka í núverandi mynd og einbeita sér að því að styrkja núverandi fyrirkomulag með samræmingu, skýrari reglum og faglegum stuðningi ríkisins.