Þrjár nýjar grenndarstöðvar samþykktar
– tvær fara í grenndarkynningu
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja upp grenndarstöðvar við Fitjar, Hæfingarstöðina á Ásbrú og í Höfnum, en tvær aðrar tillögur verða sendar í grenndarkynningu. Þetta kom fram á fundi ráðsins 6. febrúar.
Anna Karen Sigurjónsdóttir, sjálfbærnifulltrúi, lagði fram tillögu að staðsetningum grenndarstöðva í sveitarfélaginu í kjölfar erindis dags. 2. febrúar. Í tillögunni voru nefndar sex mögulegar staðsetningar: við Elliðavelli/Bjarnaróló, Afreksbraut, Geirdal, áningarstað við Fitjar, hjá Hæfingarstöðinni á Ásbrú og í Höfnum.
Ráðið samþykkti strax þrjár staðsetningar, en ákvað að senda tillögur um grenndarstöðvar við Elliðavelli/Bjarnaróló og Afreksbraut í grenndarkynningu áður en endanleg ákvörðun verður tekin.






