Almyrkvinn: Eitt herbergi laust
Á fundi Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur, sem haldinn var 5. febrúar 2026, var farið yfir stöðu Almyrkva-verkefnisins á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum sem komu fram á fundinum hefur verkefnið farið vel af stað á Suðurnesjum, miðað við stöðuna annars staðar á landinu. Þar var meðal annars greint frá því að allir um 35.000 bílaleigubílar landsins væru þegar leigðir á þeim tíma er almyrkvinn verður og að allt gistirými á vestanverðu landinu væri pantað, að undanskildu einu herbergi.
Jafnframt kom fram að gert væri ráð fyrir að um 35 skemmtiferðaskip yrðu staðsett „í línunni vestan við landið“ í tengslum við verkefnið.




