Gosmyndir Jóns Steinars sýndar á Vatnsleysuströnd í dag
Gos með augum Grindvíkings – ljósmyndasýning Jóns Steinars Sæmundssonar stendur yfir í Gallerý Geit á Vatnsleysuströnd um helgina. Í dag er síðar sýningardagur
Jón Steinar Sæmundsson, áhugaljósmyndari úr Grindavík, opnaði í gær sýningu með 26 ljósmyndum úr eldgosunum á Reykjanesskaga. Sýningin, sem ber heitið „Gos með augum Grindvíkings“, er sett upp í Breiðagerði á Vatnsleysuströnd í rými sem kallast Gallerý Geit.
Í dag, sunnudag, er síðari sýningardagurinn og er opið frá kl. 14 til 21 í kvöld.
Eldgosin hér á Reykjanesskaganum eru orðin alls tólf talsins og Jón hefur náð að mynda þau flest. Jón Steinar segist orðinn hundleiður á öllum þessum eldgosum og vogar að þeim sé að ljúka. Myndefnið sem slíkt sé þó stórbrotið og með myndunum sé verið að skrá ákveðna sögu.
Að sýningunni að Breiðagerði 31 stendur Gunnar Júlíus Helgason. Sýningarrýmið sé gamall bílskúr sem hafi verið gerður upp. Við opnun sýningarinnar í gær sagði hann að rýmið hentaði vel til svona sýningahalds. Nafnið Gallerý Geit hafi bara komið til hans þegar unnið var að auglýsingu fyrir ljósmyndasýninguna. Framtíð sýningarsalarins er óráðin og svo getur farið að ljósmyndasýning Jóns Steinars verði eini listviðburðurinn þar.
Það er ástæða til að hvetja fólk til að taka rúnt á Vatnsleysuströndina í dag og skoða sýningu Jóns Steinars. Sýningarstaðurinn er vel merktur með stóru skilti við þjóðveginn um Vatnsleysuströnd. Þá er einnig hægt að skoða geitur á staðnum en Gunnar Júlíus er mikill áhugamaður um geitur og hefur nokkrar slíkar í gerði við heimilið á ströndinni.





Sýningin er vel merkt við þjóðveginn um Vatnsleysuströnd. VF/hilmarbragi






