Festist á blómakeri við Lundúnatorg
Ökumaður blindaðist í morgunsólinni og missti við það stjórn á ökutæki sínu við Lundúnatorg í Reykjanesbæ í morgun.
Ökutækið fór upp á eyju við hringtorgið við Krossmóa og sat þar fast á stóru blómakeri.
Engin slys urðu á fólki og vel gekk að ná bifreiðinni af blómakerinu.
Myndirnar eru frá vettvangi á tólfta tímanum í morgun.







