Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Bæjarfulltrúum ekki fækkað þrátt fyrir íbúafækkun í Grindavík
Föstudagur 20. febrúar 2026 kl. 14:48

Bæjarfulltrúum ekki fækkað þrátt fyrir íbúafækkun í Grindavík

Ekki stendur til að fækka bæjarfulltrúum í Grindavík þrátt fyrir að íbúum með lögheimili í bænum hafi fækkað verulega í kjölfar náttúruhamfaranna á Reykjanesi. Þetta segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, í samtali við RÚV.

Alþingi samþykkti í gær bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar sem gerir Grindvíkingum kleift að velja hvar þeir kjósa í komandi kosningum. Ákvæðið tekur til þeirra sem voru með lögheimili í Grindavík fyrir rýmingu 10. nóvember 2023 og geta þeir valið um að kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þeir eru með lögheimili í núna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Fannar segir almenna ánægju ríkja meðal íbúa með nýja fyrirkomulagið og að kosningarnar hafi verið í undirbúningi undanfarna mánuði í samráði við stjórnvöld.

„Kjörstjórnin okkar er alveg tilbúin til að takast á við þessar kosningar eins og allar aðrar. Eina sem breytist er að það bætist á listann sá hópur sem óskar eftir því að fá að kjósa í Grindavík,“ segir hann í viðtalinu við RÚV.

Fram kemur að umsóknir um að færa kosningarétt þurfi að berast Þjóðskrá eigi síðar en 45 dögum fyrir kjördag.

Fyrir rýmingu voru vel á fjórða þúsund með lögheimili í Grindavík, en nú eru þeir tæplega 900. Fannar segir þó verkefnin fram undan vera gríðarleg, meðal annars vegna endurreisnar samfélagsins, og því hafi ekki verið talin ástæða til að fækka fulltrúum í bæjarstjórn — enda sé einnig gert ráð fyrir að íbúum fari smám saman fjölgandi á ný.

Heimild: RÚV