Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Öldungaráð vill samræmdar reglur um húsnæðisstuðning eldri borgara
Föstudagur 20. febrúar 2026 kl. 10:04

Öldungaráð vill samræmdar reglur um húsnæðisstuðning eldri borgara

Öldungaráð Reykjanesbæjar hvetur bæjarstjórn Reykjanesbæjar til að taka upp erindi Félags eldri borgara á Suðurnesjum (FEBS) um kjaramál eldra fólks og kalla eftir því við félags- og húsnæðisráðuneytið að reglur um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir eldri borgara verði samræmdar milli sveitarfélaga.

Málið var tekið fyrir á fundi öldungaráðs 16. febrúar þegar Kristján G. Gunnarsson, formaður FEBS, lagði fram erindi þar sem hann fjallaði bæði um fasteignagjöld og húsnæðisstuðning, með áherslu á að núverandi fyrirkomulag sé misjafnt eftir sveitarfélögum. Í erindinu kom fram að auka þurfi stuðning við tekjulægra eldra fólk sem býr í leiguhúsnæði.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Kristján lagði jafnframt fram ítarlegar upplýsingar um kjör eldri borgara, meðal annars með samanburði við kjör öryrkja og lægstu taxta verkafólks. Samkvæmt fundargerð var vel tekið í málið í öldungaráði og nefndarmenn sögðust ætla að koma upplýsingunum áfram.