ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Tuttugu sjúklingar Landspítala til HSS - Ekki auðvelt að opna Hlévang
Miðvikudagur 18. febrúar 2026 kl. 09:54

Tuttugu sjúklingar Landspítala til HSS - Ekki auðvelt að opna Hlévang

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, HSS, hefur þegar tekið við fimmtán sjúklingum frá Landspítala, LSH, til að leysa fráflæðisvanda bráðamóttöku LSH. Þá er von til þess að fimm sjúklingar til viðbótar frá Landspítala leggist inn á HSS.

Þá hefur ríkisvaldið komið að máli við Reykjanesbæ um að opna aftur Hlévang við Faxabraut en þar eru 30 rými. Íbúar Hlévangs fluttu á nýtt hjúkrunarheimili við Krossmóa á aðventunni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta er alls ekki auðvelt mál að opna Hlévang að nýju. Til að manna slíkt hjúkrunarheimili þarf um 60 starfsmenn, auk allra húsgagna inn á hjúkrunarheimilið.

Samkvæmt upplýsingum frá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ hafði heilbrigðisráðuneytið samband um liðna helgi, en nánari upplýsingar er ekki að hafa.