Starfshópur skipaður um valkvæðar íþróttir á skólatíma í grunnskólum Reykjanesbæjar
Menntaráð Reykjanesbæjar vill kanna hvort hægt sé að bjóða nemendum grunnskóla valkvæðar íþróttir á skólatíma og hefur samþykkt að skipa sérstakan starfshóp til að meta fýsileika slíks verkefnis. Ákvörðunin var tekin á fundi menntaráðs 6. febrúar.
Tillagan var lögð fram af Halldóri Rósmundi Guðjónssyni (Y) og ber heitið „Íþróttir fyrir alla – Reykjanesbær“. Menntaráð segir verkefnið falla vel að menntastefnu bæjarins, með áherslu á vellíðan, jafnræði og aukna þátttöku barna, og að markmiðið sé að efla hreyfingu í skólastarfi með skipulögðum íþróttum á skólatíma og samþættingu náms og hreyfingar.
Starfshópurinn á að vera skipaður fulltrúum menntasviðs og skólastjórum Háaleitisskóla, Heiðarskóla og Njarðvíkurskóla. Hlutverk hans verður að fara yfir fýsileika verkefnisins, skoða mögulegar leiðir að útfærslu, sem geta verið mismunandi eftir skólum, og leggja fram tillögur um tímaramma og framkvæmd, bæði til skemmri og lengri tíma.
Niðurstöður starfshópsins eiga að verða kynntar fyrir menntaráði í apríl 2026. Ef verkefnið verður metið fýsilegt er gert ráð fyrir að tilraunaverkefni geti hafist haustið 2026 í þeim skólum sem hafa áhuga á þátttöku.





