Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Bæjarráð samþykkir kauptilboð í lóð kísilversins í Helguvík
Laugardagur 21. febrúar 2026 kl. 08:05

Bæjarráð samþykkir kauptilboð í lóð kísilversins í Helguvík

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt kauptilboð sveitarfélagsins í lóðina Stakksbraut 9 í Helguvík. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 19. febrúar síðastliðinn.

Jafnframt var Unnari Steini Bjarndal bæjarlögmanni falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum og formanni bæjarráðs falið að undirrita kauptilboðið.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Stakksbraut 9 er lóð kísilversins í Helguvík. Á lóðinni standa mannvirki með fasteignamat upp á tæpa 2,2 milljarða króna og brunabótamat upp á tæpa 5,3 milljarða króna.