ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Almannavarnastig allt árið 2025 á Suðurnesjum
Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson
Laugardagur 21. febrúar 2026 kl. 08:07

Almannavarnastig allt árið 2025 á Suðurnesjum

Almannavarnastig var í gildi á Suðurnesjum allt árið 2025, alla 365 daga ársins, og samhæfingarstöð almannavarna (AST) var virk eða á bakvakt allan tímann. Þetta kom fram á fundi almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur 5. febrúar síðastliðinn, þar sem verkefnastjóri fór yfir samantekt á tölfræði aðgerða innan umdæmisins á liðnu ári.

Samkvæmt tölunum voru stofnaðar 30 aðgerðir í aðgerðagrunni almannavarna, 45 aðgerðir í aðgerðagrunni Landsbjargar og ein aðgerð í aðgerðagrunni lögreglu. Jafnframt var tekið fram að í samantektina vanti aðgerðir sem stofnaðar hafa verið af Landhelgisgæslu Íslands.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þegar rýnt var í aðgerðagrunn almannavarna kom fram að verkefnin voru fjölbreytt en hlutfallslega mörg tengdust flugöryggi. Þar voru sautján aðgerðir virkjanir á flugslysaáætlun á Keflavíkurflugvelli. Þá urðu tvö eldgos á árinu og stofnaðar voru sjö aðgerðir í tengslum við þau. Flóðavarnir í Grindavík voru settar upp tvisvar sinnum og aðgerðir stofnaðar í kringum það, auk þess sem ein aðgerð var skráð vegna sjávarflóða í Suðurnesjabæ. Fjórum sinnum var samhæfingarstöð almannavarna virkjuð vegna ófærðar eða veðurs.

Í tölfræði Landsbjargar innan umdæmisins komu fram tvær aðgerðir vegna leita og fjórar aðgerðir vegna slasaðra eða örmagna á gossvæðinu. Þá voru fimm aðgerðir skráðar vegna aðila í geðrænum vanda og tvær aðgerðir vegna annarra slasaðra einstaklinga utan gossvæðis. Ein aðgerð tengdist neyðarsendi og sex aðgerðir voru vegna óveðurs eða ófærðar. Einnig var ein aðgerð skráð vegna viðbragðs við Kleifarvatni, tólf aðgerðir vegna vélarvana sjófars og tólf aðgerðir vegna æfinga, gæslu eða annars.

Bent var á að í þessum tölum vanti einnig þær aðgerðir sem voru utan umdæmisins, þegar leitað var aðstoðar björgunarsveita af Suðurnesjum út fyrir svæðið. Þá var sérstaklega vakin athygli á umfangi mannafla í tengslum við eldgos. Í gosinu sem varð 1. apríl 2025 voru 144 einstaklingar skráðir inn í aðgerðina sem þátttakendur í aðgerðagrunni, en í gosinu í júlí 2025 voru 83 skráðir þátttakendur. Gosið sem hófst 1. apríl stóð stutt yfir, eða í um átta klukkustundir, en gosið sem hófst 16. júlí stóð mun lengur, eða í um 20 daga.