Gagnrýnir málsmeðferð vegna uppbyggingar við Víkingaheima
Margrét Þórarinsdóttir (Umbót) lagði fram bókun á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 3. febrúar þar sem hún ítrekar gagnrýni flokksins á málsmeðferð vegna uppbyggingar við Víkingaheima.
Í bókuninni segir Umbót að þrátt fyrir að bæjarráð hafi tekið undir bókun umhverfis- og skipulagsráðs og vísað málinu til næsta kjörtímabils standi alvarlegar athugasemdir við ferlið óbreyttar. Flokkurinn telur að engar efnislegar forsendur hafi breyst frá því faglegt mat skipulagssviðs lá fyrir og beiðni var hafnað, og að engin ný gögn hafi verið lögð fram sem réttlæti að málið hafi verið tekið aftur til afgreiðslu á þeim vettvangi.
Umbót segir málsmeðferðina grafa undan faglegu skipulagsferli, fyrirsjáanleika og jafnræði. Í bókuninni er lögð áhersla á að þegar og ef málið kemur aftur til skoðunar verði það tekið upp frá grunni, á réttum vettvangi og á grundvelli faglegs mats, óháð einstökum hagsmunum.






