Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Mannlíf

Kórverk um baráttuna við náttúruöflin kemur út á streymisveitum - útgáfuhóf í Grindavíkurkirkju
Mánudagur 23. febrúar 2026 kl. 10:30

Kórverk um baráttuna við náttúruöflin kemur út á streymisveitum - útgáfuhóf í Grindavíkurkirkju

Kórverk um baráttuna við náttúruöflin kemur út á streymisveitum Kórverkið „At least there is not a war“ eftir Helgu Margréti Marzellíusardóttur er komið út á streymisveitum í flutningi Sönghópsins Spectrum. Útgáfuhóf verður Grindavíkurkirkju föstudagskvöldið 27. febrúar kl. 20.

Verkið er innblásið af glímu Íslendinga við náttúruöflin, en ólíkir atburðir urðu kveikjan að einstökum köflum þess. Helga Margrét er frá Ísafirði, alin upp við að hafa varann á sér vegna snjóflóðahættu á vetrum. Tenging hennar við annan þátt verksins, Lullaby into another

dimension - West, er persónuleg og sterk. Helga missti bestu vinkonu sína í snjóflóðinu í Súðavík 1996. Vögguvísan er sungin á milli tveggja heima, í von um að sambandið rofni ekki.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Fyrsti hluti verksins, Breathe a Bit - East, varð til skömmu eftir að miklar hamfarir urðu á Seyðisfirði í desember 2020 og aurskriður ollu miklum skemmdum í bænum. Innra með Ísfirðingnum vöknuðu gamalkunnugar tilfinningar og samkennd með Seyðfirðingum, sem glímdu við ógnarkrafta náttúrunnar.

Kveikjan að þriðja þættinum, Be safe - South, voru hinir sögulegu atburðir í Grindavík í nóvember 2023, þegar rýma varð bæinn á svipstundu vegna jarðhræringa og yfirvofandi eldgoss. Fjórði hlutinn, Gravity - North, varð til úr tilfinningum sem kviknuðu við lestur frétta af banaslysi í Núpá í Sölvadal í Eyjafirði í árslok 2019, þar sem ungur maður úr Vestmannaeyjum fórst í krapaflóði.

„Hafi maður á einum tímapunkti óttast náttúruna og fundið fyrir vanmætti gagnvart henni er það tilfinning sem mun að öllum líkindum skjóta upp kollinum aftur og aftur,“ segir Helga Margrét. Í lokakafla verksins, I'll just ask God, er niðurstaða tónskáldsins sú að stundum sé ekki annað að gera en að leggja örlögin í hendur almættisins.

Sönghópurinn Spectrum, sem Ingveldur Ýr stýrir, hefur getið sér orð sem óhefðbundinn kór, sem kemur á óvart og nær að víkka út skilgreininguna á því hvað kór er og getur. Í verki Helgu Margrétar reynir á söngvarana, sem vefja m.a. veðurhljóð og sírenuvæl inn í raddsetninguna.

„At least there is not a war“ var tekið upp á síðasta ári í Fella- og Hólakirkju undir stjórn Ragnheiðar Jónsdóttur, en hún hlaut í fyrra Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir upptökustjórn.

Verkið kemur út sem stuttskífa á streymisveitum. Útlit útgáfunnar hannaði Monika Janina Kristjánsdóttir.