Fyrsta vetrarkynning Garðyrkjufélags Suðurnesja í samstarfi við Bókasafn Reykjanesbæjar
Ræktun fyrir alla
Í samstarfi við Bókasafn Reykjanesbæjar mun Garðyrkjufélag Suðurnesja halda kynningu á sáningu sumarblóma og matjurta miðvikudaginn 25. febrúar nk. Fanney M. Jósepsdóttir, formaður félagsins, mun ásamt öðrum stjórnarmönnum kenna réttu handtökin við sáninguna. Bókasafnið leggur til fræ og mold en þátttakendur þurfa að koma með ílát fyrir mold og fræ. Félagið hvetur alla áhugasama til að mæta, eiga notalega kvöldstund og kynnast undirstöðuatriðum sáningar á fræjum og þeim ávinningi sem slík vinna getur skilað.
Vegna flutnings á bókasafninu úr Ráðhúsinu í Hljómahöll þá féllu viðburðir og kynningar félagsins að mestu niður á síðasta ári en vilji stendur til þess að efla samstarfið enn frekar og standa að ýmiss konar viðburðum á þessu ári. Nánari upplýsingar verða gefnar á næstunni.
Garðyrkjufélag Suðurnesja var stofnað árið 2011 en það starfar sem svæðisbundin deild Garðyrkjufélags Íslands og hefur það hlutverk að annast og hrinda í framkvæmd verkefnum félagsins á Suðurnesjum. Félagið vinnur að því að efla garðrækt, fræðslu og ræktunarstarf í heimabyggð. Það er gert í samráði við markmið Garðyrkjufélags Íslands um að miðla þekkingu, tengja saman áhugafólk og stuðla að fjölbreytilegri ræktun gróðurs á Íslandi.
Starfsemi félagsins felur meðal annars í sér að styðja við samfélagsleg græn verkefni, efla fræðslu og hvetja íbúa til þátttöku í ræktun. Dæmi um slíkt er Andrými en það er garður í mótun við Ráðhús Reykjanesbæjar en Bókasafn Reykjanesbæjar hafði frumkvæðið að því verkefni með aðkomu Garðyrkjufélags Suðurnesja. Verkefnið var styrkt af Ersamus+ sjóðnum. Í því verkefni er lögð áhersla á að bæta nærumhverfi, styrkja sjálfbærni og skapa rými þar sem íbúar geta notið, lært og tekið virkan þátt í ræktun.
Aldingarður æskunnar í Reykjanesbæ er annað mikilvægt samfélagsverkefni sem var formlega afhent Garðyrkjufélagi Suðurnesja á sumardaginn fyrsta árið 2019. Garðurinn er staðsettur austan megin við stóru fánastöngina í skrúðgarðinum í Keflavík. Markmiðið með garðinum er að kynna yngstu kynslóðinni mikilvægi ræktunar og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi í gegnum leik, nám og þátttöku. Félagið gegnir lykilhlutverki í verkefninu. Það kemur að gróðursetningu, fræðslu og áframhaldandi uppbyggingu garðsins í samstarfi við garðyrkjustjóra Reykjanesbæjar, leikskólann Tjarnarsel og Rótarýklúbb Keflavíkur, sem er verndari garðsins. Í garðinum eru ræktuð aldintré, berjarunnar og ýmsar sígrænar tegundir. Töluverður fjöldi blómlauka er með aðstoð leikskólabarna gróðursettur á haustin en afraksturinn af því sjáum við þegar fer að vora. Við hvetjum bæjarbúa til þess að gera sér ferð í garðinn og sjá með eigin augum það ræktunarstarf sem þar fer fram.
Félagið hefur jafnframt umsjón með gróðurkössum sem eru staðsettir á svæði sem kallast Njarðvíkurskógar en það er útivistarsvæði Reykjanesbæjar þar sem einnig má finna leiksvæði og hundagerði. Áhugi bæjarbúa á gróðurkössunum hefur verið þó nokkur og sér félagið um útleigu á þeim.
Með þessari víðtæku aðkomu stuðlar Garðyrkjufélag Suðurnesja að aukinni umhverfisvitund, bættri nýtingu grænna svæða og sterkri ræktunarmenningu á Suðurnesjum, í anda þeirra markmiða sem Garðyrkjufélag Íslands hefur unnið eftir í meira en heila öld.
Við hvetjum áhugasama til þess að ganga til liðs við Garðyrkjufélag Íslands sem býður upp á margvíslega fræðslu og sölu á laukum, fræjum, útsæði og rósum en að auki fylgir árlegt fræðslurit félagsins. Aðild að Garðyrkjufélagi Íslands felur í sér aðild að Garðyrkjufélagi Suðurnesja.
f/h Garðyrkjufélags Suðurnesja,
Fanney M. Jósepsdóttir, formaður,
Konráð Lúðviksson,
Jóna Friðriksdóttir,
Jón P. Jónsson,
Alma Vestmann.





