ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Aðsent

Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið
Þriðjudagur 10. febrúar 2026 kl. 09:37

Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið

Rauði krossinn býður öllum ungmennum á aldrinum 12–16 ára sem búsett eru á Suðurnesjum á skyndihjálparnámskeiðið Bjargvættir - viðnámsþróttur. Námskeiðin eru 3-4 klukkustundir að lengd og verða haldin reglulega næstu vikur og mánuði. Þátttaka er ókeypis en krefst skráningar. Kennsla er í höndum reyndra leiðbeinenda á vegum Rauða krossins í skyndihjálp.
„Okkur hjá Rauða krossinum á Suðurnesjum er annt um að ungmennin í samfélaginu okkar öðlist aukið sjálfstraust og öryggi til að bregðast við óvæntum aðstæðum,“ segir Fanney Grétarsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á Suðurnesjum. „Það mun leiða til sterkara og öruggara samfélags til framtíðar.“

 Jarðhræringar á Reykjanesi á undanförnum árum hafa skekið innviði og haft í för með sér fólksflutninga. Vegna þessara áfalla hefur Rauði krossinn lagt sig fram við að hlúa að Suðurnesjabúum og auka viðnámsþrótt þeirra og hefur notið stuðnings fyrirtækisins Rio Tinto við það verkefni.

„Á Bjargvættanámskeiðinu læra ungmennin skyndihjálp til að bregðast við í neyð en sú færni valdeflir fólk einnig á öðrum sviðum,“ segir Fanney. Námskeiðin eru sérstaklega útfærð með ungmenni á Suðurnesjum í huga. „Á námskeiðinu fá þau því líka verkfæri til að takast á við stærri atburði og auka viðnámsþrótt.“

Námskeiðin Bjargvættir – viðnámsþróttur verða haldin í húsnæði Rauða krossins á Suðurnesjum að Smiðjuvöllum 9, Reykjanesbæ.

Hægt er að skrá sig á námskeiðin á heimasíðu Rauða krossins, raudikrossinn.is.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk