ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Aðsent

Viltu vinna með okkur að uppbyggingu Grindavíkur?
Laugardagur 7. febrúar 2026 kl. 05:28

Viltu vinna með okkur að uppbyggingu Grindavíkur?

Uppstillingarnefnd Sjálfstæðisfélags Grindavíkur vill heyra í þeim sem hafa áhuga á að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Grindavík fyrir sveitastjórnarkosningar árið 2026. Við leitum að fólki sem vill leggja sitt af mörkum, hafa áhrif og taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur.

Fyrirhuguð er skoðanakönnun meðal félagsmanna um 1-5 sæti á lista og því er óskað eftir umsóknum í sæti 1-5 annarsvegar og 6-14 hinsvegar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Athugið að allir sem áttu lögheimili í Grindavík 9. nóvember 2023 eða síðar geta tekið þátt.

Sendu okkur tölvupóst á netfangið [email protected] þar sem fram kemur fullt nafn, kennitala, símanúmer og hvaða sæti það er sem þú sækist eftir.

Umsóknarfrestur er frá 6 til 28 febrúar.