Sporthúsið
Sporthúsið

Aðsent

Drekkum minna – gefum meira
Fimmtudagur 5. febrúar 2026 kl. 06:37

Drekkum minna – gefum meira

Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar 2026. Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu „Drekkum minna – gefum meira“.

Sem stendur eru um 120 einstaklingar á biðlista eftir bráðri og lífsnauðsynlegri meðferð í Krýsuvík, flest þeirra ungt fólk í miklum vanda. Markmið samtakanna er að stytta þessa biðlista á næstu árum, sem krefst aukins fjármagns og víðtækari þjónustu. Með fyrirhugaðri opnun áfangaheimilis verða Krýsuvíkursamtökin í stakk búin til að taka á móti 41 einstaklingi samtímis í stað 29, sem mun stytta biðlistana verulega.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Árið 2026 markar 40 ára afmælisár Krýsuvíkur. Undanfarin ár hefur verið unnið markvisst að eflingu starfsins með betur menntuðum ráðgjöfum og samstarfi við fremstu meðferðarstöðvar í Bandaríkjunum. Árangurinn er skýr: um 70% þeirra sem ljúka sex mánaða meðferð eru edrú tveimur árum síðar og snúa aftur út í samfélagið, jafnt í nám eða störf.

Í Edrú vikunni eru landsmenn hvattir til að sleppa áfengi og gefa í staðinn andvirðið til Krýsuvíkur. Þátttaka er einföld og boðið verður upp á tvo möguleika: hringja í 902 1707 þar sem dregið er af símareikningi kr. 4500 sem nemur andvirði 12 bjóra eða greiða í gegnum www.edruvika.is þar er boðið upp á  þrjár leiðir: andvirði rauðvíns/hvítvíns kr. 3.500, andvirði 12 bjóra kr. 4.500 og andvirði sterkrar áfengisflösku kr. 7.500.

Fjöldi þekktra Íslendinga ásamt fjölmiðlum munu styðja átakið á meðan það stendur yfir.

Björgum mannslífum og tryggjum ungu kynslóðinni bjartari framtíð.